Matarhornið: Ofurstinn
May 4th, 2009Í athugasemd Rósu við seinasta matarhorn kom fram áskorun um að
lesendur yrði upplýstir um það hver ofurstinn væri sem notaður er í auglýsingum hjá KFC. Er mér bæði ljúft og skylt að segja nánari deili á þessum manni.
Stofnandi KFC og andlit fyrirtækisins út á við var Harland Sanders, en hann var fæddur í Indiana 1890. Hann ólst upp við kröp kjör og stundaði m.a. eldamennsku fyrir móður sína sem var ein og útivinnandi. Hann hraktist ungur úr skóla og vann við ýmis störf uns hann var orðinn fertugur en þá fékk hann vinnu við að steikja kjúklinga á bensínstöð í Kentucky. Var vel látið af eldamennsku hans og bensínstöðin breyttist fljótlega í veitingastað. Þar þróaði hann leynilega uppskrift að kjúklinga þar sem notaðar voru 11 kryddjurtir, sem Sanders hélt fram að væru á hverju heimili. Varð Sanders þekktur í Kentucky og útnefndi ríkisstjórinn hann ofursta, en sú nafnbót tengdist ekki ferli innan hersins þótt Sanders hefði raunar verið hermaður á Kúbu þegar hann var unglingur.
Árið 1955 fór fyrirtæki hans að ganga illa og var meginástæðan sú að hraðbrautin sem veitingastaður hans stóð við var flutt. Tók Sanders þá að selja uppskriftina til annarra og Kentucky Fried Chicken-keðjan varð til. Aðaleigendur KFC var hópur viðskiptajöfra frá Kentucky en Sanders tók að sér að vera talsmaður hans og leika í auglýsingum. Var hann klæddur að sið heldrimanna í Suðurríkjunum og þótti koma vel fyrir. Sjálfur átti Sanders hins vegar Kentucky Fried Chicken í Kanada og flutti hann þangað á gamalsaldri.
Hinn napri veruleiki er þó að sagan um leyniuppskrift Sanders er að mestu leyti skrum þótt KFC geymi hana víst enn í læstum skáp. Óháðar rannsóknir á kjúklingum keðjunnar benda hins vegar til að í kryddblöndunni séu einkum sykur, hveiti, pipar, salt og MSG. Sjálfur hélt Sanders því einu sinni fram að arftakar sínir hjá KFC hefðu eyðilagt góða vöru og breytt sósunni hans í leðju („sludge“).
Sanders andaðist 16. desember 1980 úr lungnabólgu. Þrátt fyrir óánægju sína með margt hjá KFC-keðjunni hélt hann áfram að auglýsa kjúklingana sína til hinstu stundar.
