Ísbjörninn

September 8th, 2008

Hverfiskráin okkar er við Reykjavikgade. Hún heitir Isbjørnen.

Þar eru öskubakkar á hverju borði og hundamatur á gólfinu. Stór bjór kostar 20 krónur nema á þriðjudögum og fimmtudögum kostar hann 18 krónur.

Á Ísbirninum er alltaf sama fólkið. Þessi hnefaleikakappi kemur víst þangað oft en ekki höfum séð hann ennþá. 

Þjóðnýting komin á dagskrá

September 8th, 2008

Nú hafa tveir stórir húsnæðislánasjóðir í Bandaríkjunum verið þjóðnýttir - hvað segir þetta um málflutning þeirra sem vilja leggja niður Íbúðarlánasjóð?

Siðlaus hernaður

September 8th, 2008

Árið 2007 þrefaldaðist fjöldi óbreyttra borgara sem létust í loftárásum NATO í Afganistan. Svar hernaðarbandalagsins: Fjölga loftárásum.

Mannfll í röðum óbreyttra borgara er ekki ófyrirséð hliðarafurð af svona lofthernaði. Þvert á móti er margsannað að það er óhjákvæmileg afleiðing. Gallinn er bara sá að Vesturlöndum er nákvæmlega sama þótt konur og börn séu fórnarlömb hernaðar þeirra í Afganistan. Þegar einn hermaður fellur er næg umfjöllun um það í blöðunum en þegar sprengjum er ringt yfir venjulegt fólk í Afganistan eru tuggnar upp fréttatilkynningar frá NATO-herjunum það sem fólkið er kallað „vígamenn“ og „Talibanar“. Það er ekki nema þegar heimamenn ná eyrum mannréttindasamtaka og afgönsku ríkisstjórnarinnar að þessi morð á óbreyttum borgurum eru tekin á dagskrá, en niðurstaðan er alltaf sú sama. NATO-herirnir skipa nefnd til að gera skýrslu um málið og reyna að salta fréttir af því í nokkrar vikur þangað til drápin hætta að vera harmleikur og verða að tölfræði.

Þegar svo allt er að fara úr böndunum í Afganistan hafa viðbrögð Bandaríkjanna og fylgiríkja þeirra jafnan verið hin sömu: Ráðast inn í annað land. Árið 2003 var það Írak, núna er það Pakistan.

Fannie og Freddie?

September 7th, 2008

Hver treystir lánasjóðum sem heita svona asnalegum nöfnum?

Kosher

September 7th, 2008

Konan mín vill ekki hafa svínakjöt í jólamatinn því það er „ekki kosher“. Það er svo margt rangt við þessa röksemdafærslu að ég veit ekki hvar ég á að byrja.

Hinir ólympíuleikarnir

September 7th, 2008

Ólympíuleikar fatlaðra eru hafnir. Á 9. áratugnum var fylgst allsæmilega með þeim á Íslandi en ég veðja ekki á að það verði gert núna.

Jafntefli

September 6th, 2008

Norðurlandaþjóðirnar voru friðsamar í kvöld, en Íslendingar skoruðu þó mörk. Það var meira en Dönum og Svíum tókst að gera.

Hérna á Gunnlaugsgötu var hægt að fylgjast með öllum leikjunum í einu. Það var ekki leiðinlegt.

Forseti þings en ekki þjóðar

September 6th, 2008

Einu sinni voru einu konurnar sem hlutu frama í þriðja heiminum ekkjur fyrrverandi ráðamanna. Núna er jafnréttið meira og karlarnir komast til áhrifa út á látnar eiginkonur. Þetta gildir um Asif Zardari sem núna er orðinn forseti Pakistan enda þótt hann sé alls ekki sá maður sem nýtur mests stuðnings þjóðarinnar. Í frétt RÚV er þetta orðað svo: 

„Í Pakistan er forsetinn kosinn af þjóðþinginu og fjórum héraðsþingum og var Zardari kosinn með miklum meirihluta atkvæða. Samkvæmt Gallup-könnun nýtur Zardari hins vegar aðeins stuðnings um fjórðungs Pakistana í embætti forseta.“

Zardari er alræmdur fyrir spillingu og hann virðist ekkert sérstaklega heiðarlegur í viðskiptum við aðra stjórnmálamenn. A.m.k. sakar Nawaz Sharif, sem líklega er vinsælasti stjórnmálamaðurinn í Pakistan, hann um að hafa svikið heiðursmannasamkomulag um að hvorugur þeirra ætti að sækjast eftir forsetaembættinu.

Íraksstríðið vilji Guðs?

September 6th, 2008

Skoðanir Söru Palin á ýmsum málum eru mjög athyglisverðar, t.d. að innrás Bandaríkjanna í Írak sé gerð í umboði Guðs

Miðað við ferilinn í umhverfismálum er hins vegar Sara á sömu blaðsíðu og hin álóða ríkisstjórn Íslands

Versta ræðan?

September 5th, 2008

Var ræða John McCain á flokksþingi versta ræða forsetaframbjóðanda í Bandaríkjunum frá upphafi vega? Kannski ekki, en hún fór mjög nærri því.