March 27th, 2009
Í kvöld verður fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi eins og venjan er síðasta föstudag í mánuði. Verð kr. 1500. Borðhald hefst kl. 19:00.
Matseðill kvöldsins:
* Coq au Bier (kjúklingur í dökkum bjór)
* Grænmetispottréttur
* Nýbakað brauð
Guðrún Bóasdóttir (Systa) sér um matseldina.
Skáldið og rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson mætir og flytur matargestum hugvekju.
Böðvar Stefánsson stefnir líka á að mæta. Kannski orgar hann smá fyrir matargesti.
Posted in Uncategorized | No Comments »
March 23rd, 2009
Um tveimur vikum áður en Böðvar fæddist tókum við Ólína okkur til og bökuðum bananabrauð og kryddbrauð til að eiga í frystinum. Ætlunin var svo að bjóða gestum sem kæmu til að líta á nýjasta fjölskyldumeðliminn bakkelsi með kaffinu. Það hefur hinsvegar farið minna fyrir því en til stóð. Ég hef nefnilega gúffað þessu í mig sjálf og það með þykku lagi af smjöri og nýmjólk. Svona er nú gestrisnin á þessum bæ!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 10th, 2009
Eitthvað virðist Ólína hafa hlustað á og tekið eftir þjóðfélagsumræðunni undanfarnar vikur og mánuði. Við matarborðið í kvöld sagði hún skyndilega stundar hátt “Pabbi, ég er búin að missa vinnuna”. Við reyndum að ganga á hana og fá að vita hvað hún ætti við en eina svarið sem hún gaf var að hún gæti ekki lengur skrifað. Mér sýnist því allavega að við foreldrarnir þurfum að passa betur hvað við ræðum þegar sumir eru nálægir.
* * *
Ég kjagaði samviskusamlega um miðbæinn í dag í þeirri von að það ýtti aðeins við hinu barninu. Færðin í Norðurmýrinni hefur mér ekki fundist við hæfi óléttrar konu. Því miður virðist gangan lítinn árangur hafa borið.
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
March 9th, 2009
Nú hefur mér aðeins gefist tími til að melta niðurstöðu forvals vg í Reykjavík síðasta laugardag og ég get ekki annað sagt en að ég sé bara býsna sátt við útkomuna. Það á bæði við um útkomuna í heild og svo mína stöðu. Ég sóttist vissulega eftir því að skipa 4.sætið á öðrum hvorum framboðslistanum í Reykjavík en hafnaði í því 5. Það er heldur ekkert leyndarmál að það fór svolítið um mig þegar ég sá hverjir voru meðframbjóðendur mínir í forvalinu, þarna voru svo margir öflugir einstaklngar. Niðurstaðan er góð blanda af nýliðun í efstu sætunum og svo reynsluboltum (sem reyndar eru sumir ekki með nema tveggja ára þingreynslu - en verða engu að síður taldir til reynslubolta hér).
* * *
Illugi Gunnarsson skrifar um Kyoto - bókunina í fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni “Íslenska ákvæðið” er efnahagsmál”. Það má kannski færa rök fyrir því - en voru þá sjálfstæðis- og framsóknarmenn ekki að hamast í vitlausum ráðherra hér um daginn?
* * *
Mér finnst áhugaverð sú sýn sumra sjálfstæðismanna að vinstri - græn hafi staðið á bak við búsáhaldabyltinguna. Um það get ég fátt annað sagt en að ég væri alveg til í að það hefði verið raunin en er dulítið hrædd um að þá værum við að skreyta okkur með stolnum fjöðrum.
* * *
Barnið væntanlega hefur það greinilega mjög gott í vömbinni á mér. Ég er orðin svolítið óþreyjufull að bíða og svolítið þreytt á því að vera svona þung á mér. Svo er ég farin að horfa löngunaraugum á allskonar föt í fataskápnum mínum.
* * *
Eru vöflur með rabbabarasultu það besta í heimi? Ég er ekki frá því.
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
March 6th, 2009
Ég held að við séum bara orðin nokkuð tilbúin fyrir fjölgun á heimilinu - enda svosem ekki seinna vænna - settur dagur á morgun. Okkur vantar þó ennþá bala til að baða smábarn og svo eigum við ekki leikteppi. Nú er spurning hvort einhver eigi þessi hluti og vilji gefa eða selja okkur þá. Það má hafa samband á kommentakerfinu eða senda mér póst á steiarn@hi.is
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 5th, 2009
Þeir sem ætla að taka þátt í forvali vg en eru ekki þegar skráðir í flokkinn hafa morgundaginn til að skrá sig. Við hjónin fórum í dag og greiddum atkvæði utankjörfundar - ætlum sko ekki að taka sénsinn á að vera föst á fæðingardeildinni og geta ekki kosið.
Koma soh - Steinunni í annað 4.sætið.
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
March 3rd, 2009
Það er gaman að geta flutt jákvæðar fjármálafréttir núna á þessum síðustu og verstu tímum. En þannig er að hlutabréf í Friðarhúsi hafa rokið upp í verðmæti og á aðalfundi síðasta sunnudag var ákveðið að verð á nýjum hlutabréfum hækki um 50% og verði seld á genginu 1,5 frá og með 1.maí. Nánar má lesa um þetta á Pressunni.
Verst er að Sigurður Flosason er ekki með MA gráðu í hagfræði, né neina sambærilega menntun. Fjármálum þjóðarinnar væri líklega bara fyrir komið í hans höndum eða kannski öllu heldur fötum.
* * *
Annars er eirðarleysið að fara með mig. Ég er semsagt dottin í þá gryfju að vera farin að bíða.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
February 28th, 2009
Fjölskyldan skellti sér í afmæli Birnu Þórðardóttur í dag. Ólína valdi að vera í senjórítukjól sem hæfði tilefninu vel, en henni var nú eiginlega alveg nóg um alla athyglina sem hún fékk. Birna fór í splitt - eða spígat - ég læri aldrei hvort er hvað.
Á morgun verður nóg að gera. Fyrst er það aðalfundur Friðarhúss og svo opið hús í nýrri kosningamiðstöð VG að Tryggvagötu 11, klukkan 14-18.
Þeir sem ætla að kjósa í forvali vg í Reykjavík geta kynnt sér frambóðendurna og hvað þeir standa fyrir hér - í glæsilegum frambjóðendabæklingi. Þar er einnig að finna praktískar upplýsingar um póstkosningu, utankjörfundaratkvæðagreiðslu ásamt sýnishorni af kjörseðlinum og leiðbeiningum um hvernig eigi að fylla seðilinn út.
Stanslaust stuð semsagt. Svo er bara að skrá sig í flokkinn - kjörskrá vegna forvalsins verður lokað á miðnætti 6.mars - og kjósa mig í 4. sætið. Þá verð ég ofsa glöð.
Þá er bara spurning hvort barnið í bumbunni hangi þar inni þar til allt fjörið er yfirstaðið. Settur dagur er 7.mars - sami dagur og forvalið.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
February 26th, 2009
Eiginmaðurinn játaði bljúgur að hann og barnið hefðu étið súkkulaðið mitt meðan ég var á fundi í gærkvöldi. Mér hafði ekki einu sinni dottið í hug að gruna þau um græsku. Hélt bara að ég hefði gúffað í mig súkkulaðinu í einhverju græðgiskasti og myndi svo ekki eftir neinu.
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
February 26th, 2009
Ég hélt að ég ætti hálft súkkulaðistykki uppi í skáp. Það reyndist vera misminni.
Posted in Uncategorized | No Comments »