Spurning dagsins

September 4th, 2008

Hver sagði og af hvaða tilefni?

„Það er ekki viðunandi að hefðbundin kvennastörf hjá hinu opinbera, sem krefjast langrar menntunar og mikillar sérþekkingar, séu metin til tugþúsunda lægri launa en aðrar fagstéttir, svo ekki sé talað um hefðbundnar karlastéttir sem virðast ætíð tróna á toppnum í launum.“

Fartölva

September 3rd, 2008

Þar sem fartölvan mín eyðilagðist í bílveltu sl. vor neyðist ég nú til að fjárfesta í nýrri. Mig langar að hún sé létt, einföld og PC eins og ég. Allar ábendingar mjög vel þegnar.

***

Annars er þingið farið í gang og ég hæstánægð með að vera að komast aftur í smá rútínu. Stóra verkefnið er svo að lemja saman bókina upp úr MA ritgerðinni en hún kemur út fyrir jól. Jibbíjei.

Mig langar …

August 19th, 2008

… að reyna að hlaupa 10 km. í maraþoninu á laugardag. Helst myndi ég vilja hafa félagsskap, er e-r geim?

… allsvakalega á sálarball á Nasa á laugardagskvöld. Það er alvöru menning, hámenning myndi ég jafnvel segja.

Fimmvörðuháls

August 18th, 2008

Á einhvern ótrúlegan hátt, aðallega fyrir tilstuðlan orkumikillar móður, tókst mér að komast fimmvörðuháls á innan við átta klukkutímum. Gangan var frábær og móttökunefndin í Mörkinni stóð sína plikt. Pílagrímsferið í Slippugil var auðvitað hápunkturinn enda áttum við Fífa þaðan eins margar minningar og geta safnast saman á fimm dögum í lífi barna. Sumar minningarnar á Fífa þó ein því að ég neyðist til að játa að ég er ekki með slíkt ofurminni.

Mig langar aftur í Þórsmörk, helst núna.

Hringurinn

August 7th, 2008

Ég fór hringinn og kom heim með bauga. Það er alveg ferlega ljóðrænt myndi ég ætla.

Ferðin var frábær, í alla staði, að undanskildu stóra bláa sykurfrauðsmálinu, en það er ekki beinlínis til að blogga um.

Frumraun mín á hagyrðingasviðinu gekk bara nokkuð vel, þó ég segi sjálf frá. Leitin að Fjalla-Eyvindi blandaðist skemmtilega inn í margar vísur, og reyndar Fjalla-Eyvindur sjálfur. G. pabbi var eina foreldri mitt sem lét sig hafa það að mæta á staðinn og fylgjast stoltur með dóttur sinni. Hann hafði þó vit á að aka ekki þessa ægilegu vegi sem liggja austur á Borgarfjörð heldur gekk hann og þar sem hann veit að ég ek alltaf varlega og velti ekki bílum þá lét hann mig taka bílinn yfir skarð. Ég komst sem betur fór lifandi frá því og er þess vegna til frásagnar.

Eftir gott hagyrðingakvöld en slakara fótboltamót héldum við í Neskaupstað og eyddum við kvöldinu í faðmi kunnulegra fjalla. Hlógum að misvel heppnuðum skemmtiatriðum, borðuðum hlaup og drukkum bjór, í alveg hreint ljómandi góðum félagsskap.

Ég held það sé að komast á verslunarmannahelgarhefð, sem verður aðeins rofin fyrir Þjóðhátðíð, einhvern tímann aftur … brekkusöngur, bálköstur og allt það … Fífa, hvenær, hvenær?

Borgarfjörður eystri

July 22nd, 2008

Þá fer að líða að minni þriðju tilraun til að sjá borgfirsku fjöllin. Þar sem ég hef aldrei verið neitt sérstaklega töff tek ég Álfaborgarsjéns verslunarmannahelgarinnar fram yfir Damien Rice og co. Ég meina, hagyrðingakvöld og fótboltamót, er til betri formúla?

Fyrir ári síðan sótti ég Borgarfjörð eystri heim í fyrsta sinn. Þá földu fjöllin sig í þokunni en ég varð þó þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá aðeins glitta í þau. Í febrúar fór ég aftur og tók þá Diljá með mér sem lét glepjast af ýktum lýsingum mínum af ægifegurðinni á borgarfirði. Snjóbylur sá um að hylja fjöllin í það skiptið, og reyndar huldi hann líka bæði hafið og húsin (hafið og fjöllin fyrir þau sem eru hrifin af vísunum). En nú reyni ég aftur.

Á hagyrðingakvöldinu í fyrra fór ég auðvitað baksviðs í hléi (er ekki annars töff að fara baksviðs í hléi? eða á það bara við um tónleika?). Þar eignaðist ég óvin í skipuleggjandanum þegar ég tuðaði yfir því að engin kona væri meðal hagyrðinga. Óvinur þessi varð þó vinur minn þegar líða tók á kvöldið og enn meiri vinur nú í vetur þegar okkur var plantað saman í hús í Kópavoginum lesandi ljóð. Ekki veit ég þó hvort ég ætti að kalla hann vin minn eða óvin núna því hann hefur, með vísan til yfirlýsinga minna frá því í fyrra, platað mig til að vera meðal hagyrðinganna í ár. Aldrei áður hef ég tekið þátt í slíku en einhvern tímann er allt fyrst, geri ég ráð fyrir.

Vinur minn, sem ég veit ekki hvort er vinur eða óvinur, hefur lofað að hlæja í hvert sinn sem ég gef merki. Það væri mjög vel þegið að fá fleiri slíka í salinn. Þetta er nú ekkert svo langt í burtu. Ég lofa að splæsa í bjór.

 

Miðaldra um aldur fram

July 14th, 2008

Einhvern tímann hef ég eflaust haldið því fram að ég væri mjög smart og í takt við tíðarandann. Ég segi “miðaldra” brandara, eins og þeir eigi við um annað fólk, og alls ekki mig. Í Reykjafirði fór hins vegar óstjórnlega í taugarnar á mér að langbylgjan skipti yfir á Rás 2 um miðjan dag, eins og ekkert sé sjálfsagðra. Og í staðinn fyrir að hlusta á fróðlega þætti situr maður allt í einu uppi með poppland við pönnukökubaksturinn.

Fríið fór í að borða, sofa, baka, lesa, ganga, svamla í lauginni og segja lélega orðabrandara. Á þessum slóðum þarf kons ekkert að sitja á sér þegar að þeim kemur. Það er frelsi út af fyrir sig.

Ég er svona að gæla við að eyða verslunarmannahelginni á Borgarfirði eystri. Er e-r stemmning fyrir hópferð? Ég meina, hagyrðingakvöld og fótboltamót, er hægt að biðja um meira? Svo segir sagan víst að borgfirsku fjöllin séu stórbrotin. Ég hef reynt að sjá þau tvisvar. Í annað skipti huldi þokan þau en í hitt skiptið sá snjóbylur um það…

Norðurfjörður

July 3rd, 2008

Nú bráðvantar mig far til Norðurfjarðar, annað hvort frá Rvk eða Hólmavík og annað hvort á sunndag eða þriðjudag (til að ná báti á mánudagsmorgni eða miðvikudag).

Ef þið þekkið einhvern sem þekkir einhvern sem er á þessari leið, endilega láta vita.

Sunnudagar til sælu

June 30th, 2008

Ég verð að kallast eldhress með að Spánverjar hafi landað titlinum fremur en Þjóðverjar. Og leikurinn var góður, svo að áhyggjur mínar af passívum og of stabílum leik voru óþarfar.

Einhvern veginn kemur smá léttir eftir að þessu er lokið, núna þarf ég ekki að hafa samviskubit yfir að sitja inni í góðu veðri. En þá vaknar stóra spurningin: Á ég að fara aftur með sjónvarpið niður í geymslu?

Leikurinn í dag

June 26th, 2008

Sjáumst á vellinum í dag. Landsleikurinn hefst kl. 16:30 og því kjörið að mæta á hann og svo beint heim að horfa á karlaboltann.
En mikið hefði ég viljað sjá Tyrkina taka þetta í gær. Þeir voru bara svo miklu skemmtilegri. Held með Rússum í kvöld. Eftir að Króatar duttu út ákvað ég að halda með því liði sem ynni í leik Hollendinga og Rússa, enda hefði verið glapræði að velja strax annað liðið og eiga á hættu að upplifa tapleik “sinna manna” tvo daga í röð!