Eftirfarandi eru drög að lögum Hagstundar sem borin verða upp til samþykktar á formlegum stofnfundi félagsins 27. apríl nk.
Lög Hagstundar – hagsmunafélags stundakennara á háskólastigi
1. grein
Félagið heitir Hagstund – hagsmunafélag stundakennara á háskólastigi. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. grein
Félagið er hagsmunafélag. Hlutverk þess er eftirfarandi:
a) að efla samheldni og samvinnu meðal félagsmanna óháð sviðum og/eða námsbrautum háskóla
b) að vinna að bættum kjörum félagsmanna og gæta hagsmuna þeirra í kjara- og réttindamálum
c) að bæta starfsskilyrði félagsmanna og auka gagnsæi og skilvirkni í samskiptum þeirra við háskólana
d) að hafa samvinnu við kjara- og fagfélög háskólamanna
e) að vera málsvari félagsmanna út á við.
3. grein
Félagsmenn geta verið allir þeir sem vinna eða hafa unnið sem stundakennarar á háskólastigi á Íslandi þar með taldir nemendur sem gegna kennslu á háskólastigi.
4. grein
Beiðni um inngöngu í félagið skal vera skrifleg og komið til skila rafrænt á heimasíðu félagsins eða bréflega til formanns. Stjórn fjallar um aðildarumsóknir og afgreiðir þær en endanleg afgreiðsla fer fram á næsta aðalfundi.
5. grein
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg, annað hvort rafrænt eða bréflega.
6. grein
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda í febrúar ár hvert. Til þess að aðalfundur teljist löglegur, skal til hans boðað með að minnsta kosti 10 daga fyrirvara. Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist stjórn eigi síðar en 20. janúar enda sé gerð grein fyrir þeim í aðalfundarboði.
Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti í öllum málum nema varðandi lagabreytingar. Þá þarf samþykki 2/3 hluta atkvæða þeirra sem fundinn sitja.
7. grein
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar lögð fram og borin undir atkvæði
- Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins og gerir grein fyrir þeim eftir því sem við á áður en hann ber þá undir atkvæði
- Ákvörðun á árgjaldi
- Tillögur að lagabreytingum lagðar fram til umræðu og afgreiðslu
- Kosning stjórnar og varastjórnar
- Kosning 2 skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
8. grein
Komi til þess að stjórnin segi af sér á kjörtímabilinu, skal boða til aukaaðalfundar með sömu fyrirvörum eins og um aðalfund væri að ræða. Einnig skal halda aukaaðalfund svo skjótt sem auðið er ef að lágmarki 20% félagsmanna óska þess bréflega.
9. grein
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
10. grein
Aðalfundur ákveður árgjald félagsmanna. Tillögur að breytingum á árgjaldi skulu kynntar í aðalfundarboði.
11. grein
Stjórn félagsins skipa 5 aðalmenn og tveir varamenn sem allir skulu kjörnir á aðalfundi. Í aðalstjórn sitja formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og 1 meðstjórnandi auk tveggja varamanna. Formann og varaformann skal kjósa sérstaklega en hina þrjá aðalmennina saman enda skipti þeir með sér verkum. Loks skulu varamenn kosnir saman.
Stjórn félagsins ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Stjórnin ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins. Gerðir stjórnar skulu vera bókaðar.
Stjórn félagsins skal kynna félagsmönnum allar hugmyndir og/eða tillögur um bætt réttindi og kjör sem og alla samninga sem stjórnin gerir við háskólastofnanir. Þá skal stjórnin einnig kynna hvert það samkomulag sem hún kann að komast að við önnur stéttarfélög. Allar slíkar gerðir skal bera undir atkvæði á félagsfundi. Rafræn atkvæðagreiðsla skal jafngilda atkvæðagreiðslu á félagsfundi.
12. grein
Stjórn skal boða til félagsfundar þegar tilefni er til eða ef 10 félagsmenn krefjast fundar. Félagsfund skal boða með 1 viku fyrirvara.
Stjórnin getur vísað samþykktum á félagsfundi til allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Afl atkvæða ræður úrslitum nema annað sé sérstaklega tekið fram í lögum þessum.